Prófíll

  • Nafn: Fanney Dögg Indriđadóttir
  • Stađur: Húnaţing vestra
  • Heimilisfang: Hrísar II
  • Símanúmer: 8658174
  • Atvinna: Temjari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvort er betra kók eđa pepsi?

Klukkan

Hrossavísur

Hratt er riđiđ heim um hjarn

torfbćrinn í tunglsljósinu klúkir.

Draugalegur, dökkklćddur

myrkradjákninn á hesti sínum húkir.

Tungliđ hćgt um himinn líđur

dauđur mađur hesti ríđur,

Garún , Garún.

Húni

Húni litli skeiđar létt,

lipur í taumum leikur.

Hátt ber fćtur og höfuđ nett,

kvikur bćđi og keikur.


Leit

Innskráningar kubbur

Ný síđa

26. október 2009 klukkan 21:06
Sökum facebook og netleysi í fyrra, er þessi annars indæla síða búin að vera í langri pásu. Og ég hugsa að hún verði það áfram greyið. En ég hvet ykkur endilega til að kíkja á hrisar.123.is ;D
Skottist inn á þetta elskurnar.

Mćđgur

01. mars 2009 klukkan 14:50
ÁSJÓNA BYRJAR VEL SEM RÆKTUNARHRYSSA, FYRSTA AFKVÆMIÐ ER KOMIÐ Á TAMNINGAALDUR, SJÓN FRÁ GRAFARKOTI UNDAN ÓRATOR FRÁ GRAFARKOTI. ÞESSI MYND ER TEKIN AF HENNI 4 VETRA CA 2 MÁNAÐA TAMIN.

Selfoss er

22. janúar 2009 klukkan 21:41

Yfir Hellisheiðina..... ég er farin að sakna þess að hlusta á þetta lag. Þetta er nottla aðal lagið, hlustaði ábyggilega daglega á það með Rósunni ;)

Allavega, nú er sko að koma líf í mannskapinn í Húnavatnssýslunni uss maður. Það eru allir farnir að þjálfa á fullu. Farnir að ríða marga marga kílómetra og skipuleggja og undirbúa sig fyrir LIÐAKEPPNINA. Þetta verður nú eitthvað skemmtilegt ;)

Strax komin upp svaðaleg liðapólitík og spenna. Þetta verður keppnis! Fyrsta mótið á að vera 13 Feb líklega. Þetta eru semsagt 4 lið:

Lið 1: Hvammstangi, Miðfjörður og Hrútafjörður
Lið 2: Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur (Gamli Kirkjuhvammshr. og Þverárhreppur)
Lið 3: Víðidalur og Fitjárdalur
Lið 4: Austur-Húnavatnssýsla

Ég er að sjálfsögðu í liði 3 enda búsett í Fitjárdal. Gunnar á Fitjum er liðstjórinn okkar, hann kann sko að rokka þetta upp.  Allavega þetta er gott í bili heyrumst. 

Heimurinn er fátćkari án ţín

15. janúar 2009 klukkan 22:11

Elsku Tryggvi, heimurinn er svo sannarlega fátækari án þín. Myndina tók Stella mín, æðisleg mynd ;*

Jóla jóla jóla jóla jóla jóla

12. desember 2008 klukkan 21:41
Já hæ!
Ég er stödd í Lækjarhvammi að passa litu barnarassgötin, ég er sko búin að leika í kubbó og Assa er búin að sækja boltann nokkrum sinnum fyrir Rakel og við erum búin að guffast mikið :) Litli guðsonurinn minn var svo orðinn sybbinn og núna er hann sofnaður og við Rakel erum að horfa á wipeout. Wipeout er nú meiri vitleysan, ég væri samt svo til í að prófa þetta, ábyggilega gaman að synda í sápufroðu og hoppa á svona risaboltum ;) Anyway

Það gengur vel að temja á Hrísum, við erum með skemmtileg hross í tamningu og við erum ofsa ánægð með það!! Hesthúsið er að svínvirka við erum að bæta það svona smátt og smátt! Magnað, það eru líka mjög góðar reiðleiðir - malarvegir og allskonar! Jájá þetta er allt gott og blessað. Ég byrjuð að temja hana Sjón mína loksins,,, búin að bíða svo lengi eftir henni! Mér líst svaka vel á hana. Myndin er af henni þegar hún var folald, algjör bolla að skipta um feld og við Hjalti frændi að kjassa hana ;)

Jæja er ekkert slúður, ég kann vasksöguna hennar Guddu b.t.w. ;)


Bara svona hér og ţar, AĐALLEGA ţar......

05. desember 2008 klukkan 22:18

Tekur 2 daga - MAX

21. nóvember 2008 klukkan 19:56

Jæja þá er allt að verða klárt, við erum búin að taka inn hestana og búin að taka ógeðisheyið út úr hlöðunni og setja mold og sand í staðinn. Þannig að nú er bara að fara að temja og þjálfa.

Það sem er ekki eins skemmtilegt er að símasambandið er lélegt og við erum ekki með internetið, sem mér finnst vanta. Þannig að það er ekki hægt að fá allt slúðrið beint í æð. Kolla systir var komin með nóg á afmælisdaginn minn þegar hún var búin að reyna að hringja í mig 5 sinnum og ákvað að senda mér bréf í póstinum. EKki e-mail, heldur alvöru póst. Og í leiðinni prentaði hún fyrir mig og Loga helsta slúðrið úr bloggheiminum og hestafréttir, sem var vel þegið með kaffinu ;)

Þannig að núna er ég eins og konan í "Ríkinu" bara búin að henda e-mailinu í ruslið og núna er það bara Fanney Dögg Indriðadóttir - Hrísum II - 531 Hvammstangi. Tekur 2 daga MAX ;)

P.s. takk fyrir allar afmæliskveðjurnar ;*

Kóngur um stund !!!

09. nóvember 2008 klukkan 12:19
  
  
  Hæ hæ hæ hér er rok, það er stundum rok - ekki alltaf en núna er rok! Það gengur vel að smíða, þetta er allt að koma hjá okkur og stefnan er að taka inn í næstu viku ;) Ég er svoooooo spennt!!! Reyndar er ekkert búið að ganga um helgina það er svo mikið að gera allstaðar - fundir og fleira.
Kíktum líka norður síðustu helgi, fórum í mat til Ingibjargar og Svenna sem var mjög gaman - langt síðan við höfum malað saman :)

Uppskeruhátíðin var skemmtileg, meira að segja mjög skemmtileg! Takk fyrir gistinguna Ingveldur og Jónki ;) Við Konni áttum góðan sunnudagsmorgun, horfðum á "Gott kvöld" með Ragnhildi Steinunni híhí :)

Rósa kom í heimsókn til mín í gær og ég til hennar daginn á undan, það var stööööðððð! Vorum að skoða gamlar Hólamyndir, úr afmælinu hans Rúnars og ruglmyndir úr íbúðinni góðu - good times !! :)

Anyway ég ætlaði rétt að henda inn nokkrum línum..... heyrumst!!

P.s. ég vildi að Kóngur um stund þættirnir myndu byrja aftur. Við Logi vorum einmitt að tala um það að það ætti að vera svona sér hestastöð eins og allar þessar sport stöðvar. Við gætum verið með sko 7 sportstöðvar eða eitthvað ef við vildum, allar sýna bara box, fótbolta eða formúlu!! Væri gaman að hafa eina svona hestastöð!!!

Myndir: Frá uppskeruhátíð 2008

Ég er á lífi

24. október 2008 klukkan 19:10


Alveg bullandi á lífi meira að segja. Í fréttum er þetta helst að við erum á fullu að innrétta hesthús. Búin að setja gúmmí á næstum allt gólfið, búin að rífa ull úr loftinu og setja hana á veggina. Ætlum að kaupa steinull til að setja í loftið. Síðan erum við byrjuð að útbúa stíurnar, þetta verður alveg úrvals kúrekastíll á þessu. Við erum búin að gera sjö stíur núna - allt úr timbri.
Síðan er uppskeruhátíð Þyts á næsta leyti, ógurleg spenna yfir því! Ég var plötuð í skemmtinefnd og það verður æft stíft í næstu viku. Ég held að það ætti að vera hægt að hlæja nokkuð yfir þeim ;) Spurning hvernig til tekst hjá okkur! Ætlar fólk ekki annars að mæta??

Síðan er sláturhússlútt annaðkvöld, ég er að hugsa um að mæta á það! Gæti trúað að það yrði þónokkuð skemmtilegt! Annars tímir maður varla að fara neitt lengur, því þá vinnur maður minna í hesthúsinu! Stefnan er nefninlega að taka inn um mánaðarmót.

Þetta er svona það helsta sem er að frétta af mér :)

Mynd dagsins: Svona gaman var á uppskeruhátíðinni 2006

Bíddu hvar er GLASIĐ MITT

01. október 2008 klukkan 09:59

Það var fínt í Laufskálarétt. Fór reyndar ekki á ballið í reiðhöllinni. En ég fór á sýninguna og á barinn á ball með Upplyftingu. Það var gaman, sérstaklega að hitta allt fólkið sem maður hittir svo sjaldan!

Ég hlakka rosa rosa til að fara í stóðréttir hérna heima........ Verður það ekki MEGA eða hvað?? Muna svo eftir sölusýninguna í réttinni, allir að hlaupa og kaupa ;)

P.s. ég er flutt í Hrísa!


En hey fólk Þetta er ekkert smá sætt myndbrot af 2 mönnum sem ólu upp ljónsunga, slepptu honum svo í óbyggðirnar og hittu hann svo aftur. Þeim var sagt að ljóni myndi ekki þekkja þá - tékkið á þessu.